Lýsing
Bissell SpotClean Plus blettahreinsivél
Öflug og meðfærileg vél fyrir blettahreinsun á teppum, húsgögnum og bíláklæðum.
Bissell SpotClean Plus er nett djúphreinsivél sem hentar sérstaklega vel þegar þú vilt ná upp blettum og óhreinindum án þess að þurfa að taka fram stóra teppahreinsivél. Vélin sprautar hreinsilausn í yfirborðið, vinnur á óhreinindunum með bursta og sogar síðan óhreina vatnið upp aftur.
Tveir aðskildir vatnstankar halda hreinu og óhreinu vatni aðskildu og 2,2 metra barkinn gerir auðvelt að komast að í sófum, stólum, stigum og innréttingum bíla. Vélin er aðeins um 4 kg og því þægileg að færa á milli staða.
Hentar meðal annars fyrir:
- Sófa og bólstruð húsgögn
- Teppalögð svæði og mottur
- Bílsæti og aðrar bílainnréttingar
- Stóla og önnur textíláklæði
- Blettahreinsun eftir kaffi, mat, drykki og önnur óhöpp
Helstu eiginleikar
- 330 W mótor
- 2,2 m barki
- 5 m rafmagnssnúra
- 1,1 L tankur fyrir hreint vatn
- Um 0,7 L tankur fyrir óhreint vatn
- Aðskildir tankar fyrir hreint og óhreint vatn
- HydroRinse hreinsitól til að skola barkann eftir notkun
- Þyngd um 4 kg
Lítil vél sem getur bjargað stórum óhöppum. Tilvalin til að eiga við höndina þegar bletturinn þarf að fara strax.

