Lýsing
Nilfisk GD5 Battery er þráðlaus bakryksuga sem hentar vel til þrifa í þröngum rýmum, svo sem á milli stóla, borða og hillna. Vélin er með allt að 60 mínútna vinnslutíma á fullri hleðslu og hægt er að auka sogkraftinn með sérstakri boost-stillingu. Ryksugan er einföld í notkun og auðveldar þrif þar sem erfitt er að komast að með snúru.
Tæknilegar upplýsingar
- Vinnslutími: Allt að 60 mínútur
- Hleðslutími: 40 mínútur
- Rafhlaða: Li-ion 36 V / 7,8 Ah
- Sogafl (venjulegt / boost): 45 / 116 W
- Rykpoki: 5 L
- Hljóðstig: 60 / 65 dB(A)
- Þyngd með rafhlöðu: 8 kg
Vörunúmer framleiðanda: 41600841
Pöntun og afhending
Þessi vara er pöntunarvara og er ekki seld beint í vefversluninni. Hafðu samband í síma 547 6088 eða á castus@castus.is og við göngum frá pöntuninni. Afhending er yfirleitt 1–3 virkir dagar ef varan er til á lager.





