Lýsing
Nilfisk SC250 er nett gólfþvottavél sem tryggir hröð og skilvirk þrif á hörðum gólfefnum. Hún kemst í hvert horn og þrífur í báðar áttir, jafnvel undir húsgögnum og hillum.
Vélin er létt og hljóðlát, sem hentar vel til þrifa á dagvinnutíma þar sem hún er með rafhlöðu. Frábær kostur fyrir verslanir, skóla, veitingastaði, kaffihús, bakarí, skyndibitakeðjur, hótel og ræstingarfyrirtæki.
Tæknilegar upplýsingar
- Vinnslubreidd: 340mm.
- Vinnslutími: 40 mínútur
- Afkastageta: 680m2 á klukkustund
- Fersk- og óhreinavatnstankur: 6L/6L
- Hljóðstyrkur: 63±3db
- Þyngd: 25 kg
Vörunúmer framleiðanda: 9087380020
Pöntun og afhending
Þessi vara er pöntunarvara og er ekki seld beint í vefversluninni. Hafðu samband í síma 547 6088 eða á castus@castus.is og við göngum frá pöntuninni. Afhending er yfirleitt 1–3 virkir dagar ef varan er til á lager.

