Lýsing
Numatic RSB150NX/1 er þráðlaus og lipur bakryksuga sem gengur fyrir öflugri NX300 lithium-rafhlöðu. Hún hentar einstaklega vel til þrifa í þröngum eða erfiðum rýmum, svo sem á milli sæta, í rútum, flugvélum eða stigagöngum þar sem snúrur geta flækst fyrir. Vélin er búin viðhaldslitlum mótor sem tryggir góðan sogkraft og langan líftíma.
Bakryksugan kemur með vinnuvistvænum burðarbeislum sem dreifa þyngdinni vel á bakið til að auka þægindi við vinnu. Rafhlaða og hleðslutæki fylgja með, og með hraðhleðslukerfi næst 80% hleðsla á aðeins einni klukkustund.
Tæknilegar upplýsingar
- Vinnslutími: 80–90 mínútur
- Hleðslutími: 120 mínútur (80% á 60 mínútum)
- Rafhlaða: NX300 Lithium-Ion (36 V)
- Afl: 350 W
- Loftflæði: 19,9 L/s
- Sogkraftur: 19 kPa
- Rykpoki: 5 L
- Hljóðstig: 75 dB(A)
- Þyngd: 8,2 kg
- Mál (L × B × H): 330 × 330 × 570 mm
Vörunúmer framleiðanda: 912701V
Pöntun og afhending
Þessi vara er pöntunarvara og er ekki seld beint í vefversluninni. Hafðu samband í síma 547 6088 eða á castus@castus.is og við göngum frá pöntuninni. Afhending er yfirleitt 1–3 virkir dagar ef varan er til á lager.





